Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 277/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 277/2021

Fimmtudaginn 2. september 2021

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. júní 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 26. maí 2021, á umsókn hans um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 8. apríl 2021, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2021. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun þjónustumiðstöðvar, dags. 17. maí 2021, með vísan til 12. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi 26. maí 2021 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 7. júní 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júní 2021, var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst úrskurðarnefndinni 28. júní 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. júní 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að þeir fjármunir sem hann hafi átt á reikningi sínum væru tilkomnir vegna láns sem hann hafi tekið í Landsbankanum til þess að greiða tryggingu vegna leiguhúsnæðis. Lánið hafi verið aðeins hærra en tryggingin og mismunurinn, um 250.000 kr., hafi verið á bankareikningi hans ásamt afgangi af fjárhagsaðstoð síðustu mánaða. Kærandi hafi ætlað að endurgreiða bankanum og lækka þar með lánið en hafi orðið að nota féð þar sem hann hafi ekki fengið neina fjárhagsaðstoð í apríl.

Kærandi tekur fram að hann eigi að endurgreiða Skattinum 130.000 kr. vegna mistaka sem hafi verið gerð hjá félagsþjónustu Garðabæjar. Um sé að ræða fjárhagsaðstoð sem hafi átt að skattleggja en það hafi ekki verið gert. Þá hafi Garðabær greitt kæranda hluta fjárhagsaðstoðar eftir að hann hafi flutt til Reykjavíkur og það séu skattskyldar tekjur samkvæmt Skatturinn. Af þessum sökum sé kærandi mjög illa staddur fjárhagslega og óttist að missa húsnæði sitt þar sem hann hafi ekki peninga til að greiða leiguna.

Með vísan til framangreinds óski kærandi þess að úrskurðarnefnd velferðarmála hnekki framangreindri ákvörðun og feli félagsþjónustu Reykjavíkurborgar að greiða honum fjárhagsaðstoð vegna aprílmánaðar.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé flóttamaður og hafi verið á fjárhagsaðstoð frá því að hann hafi fengið stöðu um alþjóðlega vernd þann 15. ágúst 2019. Hann sé í virkri atvinnuleit ásamt því að sækja íslenskunámskeið. Umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir aprílmánuð hafi verið synjað þar sem hann hafi átt inneign á bankareikningi, alls 432.712 kr., og að það samræmist ekki 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar.

Tekið er fram að samkvæmt 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga skuli sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er meti þörf og ákveði fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veiti þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilji veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga sé mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veiti. Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi tekið gildi 1. apríl 2021.

Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991. Sú meginregla gildi að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð ef hann geti ekki framfleytt sér sjálfur. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð og 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í III. kafla reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavík sé að finna ákvæði sem lúti að rétti til fjárhagsaðstoðar. Við mat á því hvort umsækjandi geti átt rétt til fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglunum skuli meðal annars horft til 12. gr. reglnanna sem kveði á um hvernig skuli litið til tekna og eigna umsækjanda. Í 4. mgr. 12. gr. segi:

„Eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði og eina fjölskyldubifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skal honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð.“

Óumdeilt sé að kærandi hafi átt 432.712 kr. inn á reikningi þann 6. apríl 2021. Skýringar kæranda á þeirri inneign séu þær að um væri að ræða endurgreiðslu leigusala til hans á leigutryggingu, 495.000 kr., sem hann hafi fengið lán fyrir hjá Landsbankanum. Hann hafi notað hluta til að borga tryggingu vegna leiguhúsnæðis að B í Reykjavík en leigutryggingin þar hafi verið lægri. Mismunurinn hafi verið 250.000 kr. en að auki hafi verið afgangur fjárhagsaðstoðar fyrri mánaða. Staða á reikningi kæranda þann 27. apríl 2021 hafi verið 389.840 kr.

Ítrekuð sé sú meginregla að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð ef hann geti ekki framfleytt sér sjálfur en umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar og 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs talið ljóst að kærandi hefði undir höndum fjármuni sem honum bæri að nýta sér til framfærslu áður en leitað væri eftir fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því talið að synja bæri um fjárhagsaðstoð á grundvelli 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð og staðfest synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar á fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2021.

Samkvæmt framansögðu sé ljóst að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991.

IV.  Niðurstaða

Kærð er synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2021.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 7. mgr. 12. gr. reglnanna kemur fram að eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði til eigin nota og eina fjölskyldubifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skuli honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð. Ef umsækjandi, maki hans eða sambýlisaðili eigi eignir sem nýtast geta til framfærslu eigi hann ekki rétt á fjárhagsaðstoð.

Reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð ganga út frá því að aðrar eignir en íbúðarhúsnæði og fjölskyldubifreið sé eðlilegt að nota sér til framfærslu áður en fengin er fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Fjárhagsaðstoðin er þannig neyðarúrræði fyrir þá sem hafa ekki aðgang að fjármunum sér til framfærslu.

Umsókn kæranda var synjað á þeirri forsendu að hann ætti fjármuni inn á bankabók sem honum bæri að nýta sér til framfærslu áður en til fjárhagsaðstoðar kæmi frá sveitarfélaginu. Af kæru og gögnum málsins má ráða að ekki sé ágreiningur um að innstæðan hafi verið til staðar. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður ekki hjá því litið að kærandi átti eignir umfram íbúðarhúsnæði og eina fjölskyldubifreið, sbr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, þegar umsókn um fjárhagsaðstoð barst Reykjavíkurborg. Með vísan til þess er synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2021 staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 26. maí 2021, um synjun á umsókn A um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                 Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum